Main menu:

Skapandi skrif út um allan bæ!

Höfundur Tvískinnu hefur fært sig upp á skaftið og er að koma sér fyrir víðs vegar í skólakerfinu.

Í leikskóla, hálfan daginn.

Í skapandi skrifum í Listaháskóla Íslands.

Í bókmenntasögu og skapandi skrifum við Kvikmyndaskóla Íslands.

Í skólaheimsóknum í grunnskóla með efni Tvískinnu.

Á öllum skólastigum, sem sagt.

Hér er heildarlisti yfir þá skóla sem nota Tvískinnu.

Þar að auki verð ég með námskeið í skapandi skrifum á vegum Mímis sem hefst þann 1. október. Örfá sæti laus!

Allar nánari upplýsingar hér: http://url.is/2bd

Skólar sem nota Tvískinnu í kennslu verða sífellt fleiri – nú síðast hafa bæst í hópinn Austurbæjarskóli, Salaskóli, Verkmenntaskóli Austurlands á Neskaupstað og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi.

Það er fjör! Áhugasamir skrái sig á námskeið hið fyrsta http://url.is/2bd en ó-áhugasamir éti það sem úti frýs. Í fullum kærleika.

Kveðja,

Davíð

http://tviskinna.ljod.is/

Vel heppnuð vesturferð

Á mánudaginn hlotnaðist mér sá heiður að kenna 7 vestfirskum krökkum skapandi skrif og gagnrýna hugsun. Hópurinn var mjög skemmtilegur og verst þótti mér að geta ekki eytt meiri tíma með þeim. Við gerðum alls kyns furðulegar tilraunir, greindum auglýsingar og málverk, pússluðum saman ljóðum í tímapressu, bjuggum til myndverk með lími og skærum og svo mætti lengi telja.

Í leiðinni heimsótti ég nánast alla grunnskóla á svæðinu í kringum Ísafjörð og fékk að hitta skólastjóra og kennara. Í sumum slíkum heimsóknum lét ég kennarana gera sömu æfingar og unglingarnir þurftu að gera – og það var mjög áhugavert …

Myndir væntanlegar …

Orð eru sprengjur og setningar sverð

Þær hafa orðið gleðifregnir að mér býðst að ferðast með Tvískinnu um  Vestfirði í heila viku. Háskólasetur Vestfjarða stendur fyrir Listaháskóla unga fólksins í næstu viku og ég kenni skapandi skrif fyrir 12-16 ára unglinga á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík.

Þar sem ég er aðeins upptekinn þrjá daga af fimm er ég að hringja í fyrirtæki, skóla og menningarstofnanir og bóka mig inn með stutta fyrirlestra. Þetta er eitthvað sem kalla mætti Sumargleði Tvískinnu 2009, hálfgert tónleikaferðalag, og ef að líkum lætur næ ég að hitta ógrynni af Vestfirðingum á öllum aldri og bera þeim (mikilvægan) boðskap Tvískinnu. Áhugasamir fyrirtækjaeigendur á Vestfjörðum eru hvattir til að hafa samband.

Hér er Háskólasetrið og hér er Listaháskóli unga fólksins!

Sjáumst fyrir vestan!

Ný sköpun er nýstárleg fermingargjöf

Nú brestur á með fermingum þar sem unglingar segja já við Guði og gjafaflóði. Og valið stendur á milli flatskjáa, svefnpoka, úra eða ljóðasafna. Höfum við annað val? Já, reyndar. Við getum gefið skapandi hugsun.

Fermingargjafabréf á tveggja kvölda námskeið í skapandi skrifum og gagnrýnni hugsun í samvinnu við Þorvald Þorsteinsson og www.kennsla.is.

Verð: kr. 12.500- og eintak af Tvískinnu fylgir með.

Nánari upplýsingar hér fyrir neðan og í síma 864 7200.

PANTA GJAFABRÉF

Nafn

Netfang

Sími

Kennitala

Nafn fermingarbarns

Sannaðu að þú ert manneskja með því að skrifa textann úr myndinni inní boxið

captcha

NÁNAR UM NÁMSKEIÐIÐ:

Nú brestur á með fermingum þar sem unglingar segja já við Guði og gjafaflóði. Og valið stendur á milli flatskjáa, svefnpoka, úra eða ljóðasafna.

Höfum við annað val?

Já, reyndar. Við getum gefið skapandi hugsun.

Fyrir jólin kom út bók mín Tvískinna, sem stundum er uppnefnd „móteitur í bókarformi“. Bókin sú er afhjúpandi og fjallar um ofurmátt tungumáls og myndmáls yfir okkur öllum sem búum í neyslusamfélaginu Íslandi.

Í samvinnu við Þorvald Þorsteinsson og fyrirtæki hans kennsla.is er nú boðið upp á unglinganámskeið í skapandi skrifum og gagnrýnni hugsun þar sem Tvískinna verður lögð til grundvallar. Á námskeiðinu verður rýnt í blaðaauglýsingar, kvikmyndir, ljóð, orðræðu stjórnmálanna og tíndar til ýmsar leiðir til að virkja hausinn til skapandi hugsunar.

Þú getur því gefið þínum unglingi frækorn í heilann, rætur í hjartað og vel brýnda gagnrýni í augun.

Fallegt gjafakort á Tvískinnu-námskeið kostar kr. 12.500- og bókin fylgir með í kaupunum. Námskeiðið er tveggja kvölda, það fer fram í lok apríl og byrjun maí og skarast því ekki við mesta námsálagið hjá unglingunum. Nánari dagsetningar á eftir að festa niður.

Sendu póst á tviskinna@ljod.is ef þú vilt panta skapandi námskeið fyrir þinn fermingarungling. Mundu: Flatskjár er valkostur, ekki skylda – skapandi hugsun er nauðsyn, ekki munaður.

Námskeið hjá Endurmenntun

Jæja, nú er komið að því að halda námskeið upp úr fagnaðarerindi Tvískinnu. Endurmenntun Háskólans tók vel í erindi mitt í janúar og nú er búið að smíða námskeiðið Tungumálið er valdatæki – um skyndibita sem setjast á heilann sem fer fram mánudagana og miðvikudagana 23. og 25. feb. og 2. og 4. mars kl. 13:00 – 16:00, sem sagt fjögur skipti í samtals 12 kennslustundir.

Námskeiðið er í flokknum Uppeldis- og kennslusvið og verður stílað að nokkru leyti inn á kennara á öllum skólastigum, en allir aðrir áhugasamir eru hvattir til að kíkja líka. Það verður forvitnilegt fyrir ókennaramenntaðan bókmenntafræðinginn að kenna fullum sal af kennurum. Vonandi verða þeir ekki mjög grimmir. Vonandi.

Þess er vert að geta að svona námskeið er gjarnan niðurgreitt af vinnustöðum og/eða verkalýðsfélögum.

Svo er væntanlegt námskeið fyrir hugsandi unglinga, meira um það síðar.

Og nú inn í framhaldsskólana!

Ég fékk fallegt símtal í fyrradag þar sem óskað var eftir eintökum af Tvískinnu fyrir Verkmenntaskóla Austurlands. Vegna anna hef ég ekki komist í að hringja í nema fáeina skóla og því er ánægjulegt þegar þeir finna sjálfir hjá sér frumkvæðið – það hlýtur að benda til þess að hróðurinn berist víða …

Þessa dagana er ég líka að leggja drög að námskeiðum upp úr Tvískinnu. Líkast til held ég eitt námskeið fyrir fullorðna og annað sem verður sérsniðið að þörfum unglinga. Nánar síðar.

Tvískinna er móteitur í bókarformi

Baksíðutexti og ummæli

Í Tvískinnu fjallar Davíð A. Stefánsson um hlutverk tungumáls og táknfræði í samfélaginu. Ótal textar og myndskilaboð dynja á okkur daglega og oft er erfitt að greina bullið frá ruglinu, enda meltum við skilaboðin bæði meðvitað og ómeðvitað. Hér er meðal annars leitað fanga í auglýsingum, kvikmyndum, ljóðum og misfyndnum glærusýningum til að gramsa í undirdjúpum tungumálsins.

Tvískinna er auðlesin en krefjandi bók fyrir alla sem hafa áhuga á samfélaginu og tungumálinu sem heldur því saman.

- – -

Á meðan allir keppast við að ota slagorðum og skyndibitum að æsku landsins hefur Davíð smíðað móteitur í bókarformi sem leggur grunn að gagnrýninni og skapandi hugsun. Tvískinna er ómetanlegt tæki til að kveikja áhuga og umræðu, bæði við eldhúsborðið og í kennslustofunni.
Andri Snær Magnason – rithöfundur

Tvískinna er mikill fengur fyrir alla sem elska tungumálið. Ný og upplífgandi sýn á íslenskt mál og skapandi hugsun.
Ingunn Snædal – ljóðskáld og kennari

Í Tvískinnu er bent á mátt orðanna sem geta bæði frelsað og fjötrað. Hún krefur lesandann um að vera á varðbergi gagnvart öllu sem hann les og heyrir.
Ásgeir Beinteinsson – skólastjóri

Þessi bók er svo dásamlega á skjön við það sem almennt er haldið að ungu fólki að henni ætti að fylgja sérstök aðvörun: „Varúð! Gæti gefið lesendum þá hugmynd að mótun tungumálsins sé sameiginlegur réttur okkar allra! Tvískinna er líkleg til að efla sjálfstæði og sköpunargleði meira en góðu hófi gegnir!“
Þorvaldur Þorsteinsson – rithöfundur og myndlistarmaður

Falleg ummæli í Stúdentablaðinu

Ég var að fá í hendurnar nýjasta tölublað Stúdentablaðsins. Þar situr starfsfólk Bóksölu stúdenta fyrir svörum um spennandi bækur fyrir jólin og Auður Aðalsteinsdóttir og Ásgeir H. Ingólfsson hafa þetta að segja:

Auður: Svo er önnur bók hérna sem ég er mjög hrifin af. Ég hef gluggað í hana við afgreiðsluborðið og hlegið upphátt. Hún heitir Tvískinna og er eftir Davíð A. Stefánsson. Hún er um íslenska tungu og ljóð og er mjög skemmtilega skrifuð. Hugleikur Dagsson myndskreytir hana.
Ásgeir: Það á að taka hana til kennslu á næstu önn, í einhverjum framhalds- og grunnskólum.
Auður: Já, hún er tilvalin til þess!

Hér er Stúdentablaðið í PDF-formi.

Og það er einmitt rétt sem fram kemur – bókin er þegar komin til kennslu í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem hún verður á leslista í a.m.k. einum áfanga í Háskóla Íslands eftir áramótin.

Tvískinna ratar til sinna

Það var ekki leiðinlegt að fá þessa mynd senda í pósti … vonandi að hún hafi góð áhrif á störf þingmanna næstu misserin. Spurning um að setja neyðarlög sem skylda þingmenn til að lesa hana?

Ljósmynd: Ómar Óskarsson

Tvískinna á góðu róli

Nú er Tvískinna að komast á gott ról, fjölmiðlar farnir að taka við sér og nokkrar umfjallanir væntanlegar á næstu dögum, bæði á Mogganum og á Stöð 2. Bókin hreyfist talsvert í bókabúðum og dettur inn á bókaborð Hagkaupa á morgun, föstudag. Á næstunni fer ég á ról með Hugleiki Dagssyni, myndhöfundi bókarinnar, þar sem við lesum upp og búum til eitthvað sjó úr þessu öllu saman.

Tvískinna er fagnaðarerindi, óður til tungumálsins og hvatning til allra um að taka það til sín, eiga það, leika sér með það. Hún er tól til að afkóða auglýsingar.

Og svo er hún líka svo falleg …