Main menu:

Ný sköpun er nýstárleg fermingargjöf

Nú brestur á með fermingum þar sem unglingar segja já við Guði og gjafaflóði. Og valið stendur á milli flatskjáa, svefnpoka, úra eða ljóðasafna. Höfum við annað val? Já, reyndar. Við getum gefið skapandi hugsun.

Fermingargjafabréf á tveggja kvölda námskeið í skapandi skrifum og gagnrýnni hugsun í samvinnu við Þorvald Þorsteinsson og www.kennsla.is.

Verð: kr. 12.500- og eintak af Tvískinnu fylgir með.

Nánari upplýsingar hér fyrir neðan og í síma 864 7200.

PANTA GJAFABRÉF

Nafn

Netfang

Sími

Kennitala

Nafn fermingarbarns

Sannaðu að þú ert manneskja með því að skrifa textann úr myndinni inní boxið

captcha

NÁNAR UM NÁMSKEIÐIÐ:

Nú brestur á með fermingum þar sem unglingar segja já við Guði og gjafaflóði. Og valið stendur á milli flatskjáa, svefnpoka, úra eða ljóðasafna.

Höfum við annað val?

Já, reyndar. Við getum gefið skapandi hugsun.

Fyrir jólin kom út bók mín Tvískinna, sem stundum er uppnefnd „móteitur í bókarformi“. Bókin sú er afhjúpandi og fjallar um ofurmátt tungumáls og myndmáls yfir okkur öllum sem búum í neyslusamfélaginu Íslandi.

Í samvinnu við Þorvald Þorsteinsson og fyrirtæki hans kennsla.is er nú boðið upp á unglinganámskeið í skapandi skrifum og gagnrýnni hugsun þar sem Tvískinna verður lögð til grundvallar. Á námskeiðinu verður rýnt í blaðaauglýsingar, kvikmyndir, ljóð, orðræðu stjórnmálanna og tíndar til ýmsar leiðir til að virkja hausinn til skapandi hugsunar.

Þú getur því gefið þínum unglingi frækorn í heilann, rætur í hjartað og vel brýnda gagnrýni í augun.

Fallegt gjafakort á Tvískinnu-námskeið kostar kr. 12.500- og bókin fylgir með í kaupunum. Námskeiðið er tveggja kvölda, það fer fram í lok apríl og byrjun maí og skarast því ekki við mesta námsálagið hjá unglingunum. Nánari dagsetningar á eftir að festa niður.

Sendu póst á tviskinna@ljod.is ef þú vilt panta skapandi námskeið fyrir þinn fermingarungling. Mundu: Flatskjár er valkostur, ekki skylda – skapandi hugsun er nauðsyn, ekki munaður.

Comments

Comment from Hrund Helgadóttir
Time April 6, 2009 at 9:54 pm

Heil og sæl. Var að panta námskeið fyrir Tjörva Axelsson fermingardreng sem fermist á skírdag, næsta fimmtudag sem sagt. Þætt mjög vænt um að geta nálgast gjafabréfið áður. Einnig verður pantað gjafabréf af öðrum fyrir Snorra Örn Arnason fermingardreng og best væri ef þeir kæmust saman á námskeiðið (segi þetta til öryggis ef um fleiri en eitt námskeið er að ræða). Frábært framtak, hlakka til að fylgjast með drengjunum.

Pingback from Áhugavert námskeið fyrir m.a. fermingarbörn | Siðmennt
Time April 8, 2009 at 11:23 pm

[...] Davíð býður upp á gjafabréf á námskeiðið og eintak af bókinni fyrir kr. 12.500 kr. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu bókarinnar. [...]

Write a comment





Spam Protection by WP-SpamFree Plugin